Vefdagbók
Myndaalbúm
Kveðjur frá gestum
Gullkorn
Dagbók barnsins
Sólrún Brynja
Sólrún Brynja
til hamingju með að vera orðin stórasystir þú ert ekkert smá heppin gangi þér rosanlega vel með litla bróður þinn og vertu dugleg að hjálpa mömmu þinni :)
gugga aníta ósk birta maría og bárður sindri | 0 | 14.1.2011 19:07:03 #
hæhæhæ.....hvar eru myndir frá 060610...i love u..
brynja | 0 | 8.7.2010 14:23:35 #
til hamningju með daginn sæta
Aníta ósk bárður sindri og birta maría | 0 | 6.6.2010 23:52:11 #
Þegar ég var 4 ára var ég orðin 112,00 cm og 25,50 kg.
Sólrún Brynja - 4 ára
Hallo saeta fraenka.Thu ert ad verda svo tor og mikil DAMA !!
katrin | 0 | 22.4.2010 14:33:09 #
hæhæhæ.
brynja | 0 | 17.2.2010 03:55:23 #
Hæ bara kvitta fyrir komuna og ath hvort það væru komnar nýjar myndir
Björk og Strákarnir | 0 | 17.1.2010 19:47:48 #
S.B. Fallegust í Jólakjólnum.
Brynja frænka | 0 | 29.12.2009 13:47:42 #
Halló dúllan mín. I LOVE YOUUUUU.
brynja@pacbell.net | 0 | 14.12.2009 02:56:53 #
jæja það er kominn oktober sko :) kv Ivan Freyr og Mamma
Aníta | 0 | 16.10.2009 10:29:41 #
  • Elsku Solrun gaman ad sja hvad thu ert orinn mikill DAMA !!Bestu kvedjur til mommu thinnar og pabba.Kata fraenka i L.A !!
    Katrin Gunnarsd.Fabbiano
    |
    27.9.2009 02:07:29
  • Hæ hæ hvernig er það á ekkert að fara að setja inn myndir kv Ivan Freyr og Mamma
    Anita
    |
    16.9.2009 12:09:14
Jæjs hvernig er þetta engar nýjar myndir kv Ivan Freyr og Mamma
Aníta | 0 | 23.7.2009 08:33:16 #
  • Til hamingju með 3 ára afmælið skemmtu þér vel í dag :D Kv Ivan Freyr og co
    Aníta
    |
    6.6.2009 14:21:00
  • Til hamingju með daginn Elsku litla Sólrún Brynja okkar, við hlökkum til að hitta þig í dag í afmælinu þínu. Eigðu góðan dag sæta.. Kveðja, María, Jón óskar og börn
    María Kristinsdóttir
    |
    6.6.2009 12:56:24
  • Til hamingju með 3 ára afmælið :D Flott síðan þín, sjáumst í dag ;)
    Natalía Nótt og mamma
    |
    6.6.2009 10:21:40

Jæja gott fólk...nú var ég aðeins að fara yfir heimasíðuna hennar Sólrúnar Brynju og sá auðvitað hvað ég hef verið dugleg að skrifa í vefdagbók heheh. Ég nenni nú kannski ekki alveg að skrifa fyrir síðustu tvö ár en nú ætla ég að fara að REYNA að skrifa reglulega hérna innSealed

Nú er skvísan að verða 3ja ára gömul eftir tvær vikur og endalaust margt hefur gerst hjá henni. Hún er alltaf í leikskólanum sínum Gimli og eftir sumarfrí fer hún yfir á "stóru" deildina þar. Hún veit ekkert betra en að vakna á morgnana og fara að hitta vini og vinkonur á leikskólanum. Ég er svakalega heppin með hvað hún er hraust stelpa því það er hægt að telja á fingrum annarrar handar hversu oft hún hefur orðið lasin síðan hún byrjaði á leikskóla.

Hún er búin að fara á tvö námskeið í íþróttum í Stubbaakademíunni og hefur staðið sig með prýði þar, ég fór með hana til læknis um daginn vegna þess að hún er svo svakalega stíf og hoppar mjög lítið miðað við hvað börn á hennar aldri eiga að geta. Ástæðan kom í ljós hjá lækninum og hún er sú að hún er OF liðug, s.s. öll liðbönd í fótum hennar eru svo slök að hún gerir sig stífa þegar hún hoppar vegna þess að annars finnur hún fyrir jafnvægisleysi og öryggisleysi. Það er lítið hægt að gera í þessu nema bara passa uppá skófatnað sem hún er í og vera dugleg að láta hana labba á ójöfnu, til þess að styrkja hana. Læknirinn sagði mér líka að það þyrfti að láta HNE lækni kíkja á kirtlana hennar því hún er með svo stóra kirtla....(hún vaknar upp við hroturnar í sjálfri sér, einsog mamman gerði hér í den)

Sólrún Brynja er algjör útibarn og það er erfitt að reyna að fá hana inn á kvöldin þegar hún á að fara að sofa.....hún vill bara vera úti úti úti og ekkert múður með það, ég er rosalega ánægð með það þrátt fyrir að þurfa að hafa fyrir því að koma henni inn, sérstaklega núna þegar það er orðið bjart allan sólarhringinn og hún tilkynnir mömmu sinni að það sé sko ekki komin nótt.

Hún elskar að syngja og syngur allan daginn,frá því hún vaknar og þar til hún sofnar á kvöldin, uppáhaldslögin hennar þessa dagana eru Mamma Mia með Abba, þú komst við hjartað mitt með Hjaltalín og Bahama með veðurguðunum:)....já mín er ekkert endilega að syngja leikskólalögCool Þegar hún byrjaði að tala þá sko byrjaði hún að tala og stoppar varla, hún er rosalega skýr í tali og óvitlaus....hún á það jafnvel til að leiðrétta fullorðna fólkið ef það talar vitlaustTongue out

Sólrún og Kristófer frændi hennar eru alltaf jafn miklir vinir, eða meira einsog systkin, elska hvort annað útaf lífinu en geta líka rifist einsog hundur og köttur. Það er gaman að sjá hvað þau halda mikið uppá hvort annað, ef þau hittast ekki í einhvern tíma þá hlaupa þau á móti hvort öðru og faðmast og knúsast. Nú svo á hún líka rosalega góðan vin sem býr við hliðina á okkur, hann heitir Albert og þau eiga rosalega vel saman. Þau leika sér saman úti frá morgni til kvölds, svo koma bara tár hjá þeim þegar á að fara inn að sofa. Eins ef annað þeirra er ekki heima þá verður hitt mjög sárt yfir því að geta ekki leikiðLaughing

Litla stelpan mín með stóra skapið sitt en að ná tökum á skapi sínu og er með eindæmum kurteis og góð. Mamma mín, afi minn, takk fyrir, nei takk, já takk, takk fyrir mig og allt þetta er svo ríkt í henni og mér finnst það alveg yndislegt hvað hún er dugleg að þakka fyrir sig og vera kurteis.

Nú fer að líða að 3ja ára afmælinu hennar og hún er sko alveg búin að sjá til þess að mamma gamla gleymi því ekki, hún er búin að tala um það síðustu 6 mánuði og er með veisluna á hreinu, hvernig köku hún vill og hverjir eigi að koma í afmælið sitt. Það verður kátt á hjalla hér þann 6.júní þegar afmælið verður haldið, og miðað við hvað hún vill fá marga í veisluna þá þyrfti ég að leigja stóran sal hehehe.

Jæja ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili en lofa að vera duglegri að skrifa hérna héðan í frá.

0 | 23.5.2009 08:16:56 #